Fréttir

20 tímabil kvennaliðs Vestra á Íslandsmóti í blaki

Blak | 24.10.2026
Kvennalið Vestra
Kvennalið Vestra

Keppnistímabilið í blaki hófst um síðustu mánaðarmót og á þeim tíma eru karlaliðið okkar í Úrvalsdeild búið að spila fjóra leiki og kvennaliðið okkar í 1. deild búið með fimm leiki.

En fyrstu heimaleikir liðanna eru um þessa helgi.  Karlaliðið spilar tvo leiki við KA en kvennaliðið spilar leiki við Fylkir og HK/Ýmir B.

Fyrri leikur dagsins var karlaleikurinn, sem reyndist háspennu leikur þar sem Vestri vann KA í oddahrinu, 3–2. Liðin skiptust á að vinna hrinur, í þeirri fyrstu þurfti upphækkun til að knýja fram úrslit en þar hafði Vestri betur, 28–26. KA svaraði með 25–18 í annarri hrinu.  Vestramenn náðu aftur forystunni með 25–21 sigri í þriðju hrinu. KA vann svo þá fjórðu 25–19, þannig að komið var að oddahrinu. Þá var eins og tankurinn væri tómur hjá KA mönnum, Vestri vann 15–8 og tryggði sér sigurinn í leiknum og tvö stig.  Vestramenn hafa unnið alla sína fjóra leiki tímabilsins, en tvo af þeim í oddahrinu og eru sem stendur í efsta sæti deildarinnar, einu stigi á undan Hamri.

Seinni leikur dagsins var kvennaleikurinn sem var ekki síður æsispennandi, en þar vann Vestri Fylki 3-1.  Jafnræði var með liðunum en Vestri vann fyrstu tvær hrinurnar 25-22 og voru því komnar í vænlega stöðu.  Fylkiskonur voru samt ekki á því að leggja árar í bát og náðu að knýja fram sigur í þriðju hrinu, með upphækkun 28-26.  Fjórðu hrinuna leiddu svo Vestrakonur framanaf, náðu á tímabili góðu forskoti, 17-10, en Fylkir náði að jafna í 20-20.  Vestri var svo sterkari á endasprettinum og tók hrinuna 25-23 og því leikinn 3-1.

Þetta tímabil er það tuttugasta í röð sem Blakdeild Vestra og áður Blakfélagið Skellur, halda úti kvennaliði á Íslandsmótinu í blaki.  Og þá er nýbyrjað tímabil það áttunda í röð sem karlalið undir okkar merkjum spilar í efstu deild.

Deila